Sjö mínútna þögn í útvarpi og sjónvarpi

Sjö mínútna þögn á fjölda einkarekinna íslenskra fjölmiðla frá klukkan …
Sjö mínútna þögn á fjölda einkarekinna íslenskra fjölmiðla frá klukkan níu næstkomandi fimmtudagskvöld

Þögn verður í sjö mínútur á fjölda einkarekinna íslenskra fjölmiðla frá klukkan níu næstkomandi fimmtudagskvöld. Með þessu móti vilja einkareknir fjölmiðlar árétta mikilvægi þess að samkeppnisstaða sé jöfnuð á íslenskum fjölmiðlamarkaði.

Í fréttatilkynningu sem undirrituð er af forsvarsmönnum Hringbrautar, 365 miðla, ÍNN, Útvarps Sögu og Sjónvarps Símanns, segir að einkareknir  fjölmiðlar fagni „jákvæðum viðbrögðum þingmanna þvert á flokka sem birtust í kjölfar ákalls þeirra um að fjölmiðlalögum yrði breytt til þess að jafna samkeppnisstöðu þeirra á íslenskum fjölmiðlamarkaði.“

Til áréttingar um mikilvægi málsins verði slökkt á útsendingum í 7 mínútur fimmtudagskvöldið 1. september næstkomandi.

„Afar mikilvægt er að einkareknir fjölmiðlar sitji við sama borð og erlendir keppinautar sem nú herja bæði á áskriftar- og auglýsingamarkað á sama tíma og þeir greiða hér hvorki skatta né gjöld. Þessir miðlar lúta ekki íþyngjandi reglum um meðhöndlun efnis sem innlendir fjölmiðlar reglum gera. Einkareknir miðlar treysta á tekjur af auglýsingasölu til að standa undir starfseminni og því væri öllum til hagsbóta væru opinberir fjölmiðlar ekki á þeim markaði,“ segir í fréttatilkynningunni.

Engar útsendingar verða frá eftirtöldum fjölmiðlum:

Útvarp Saga, ÍNN, Stöð 2, Stöð 3, Bíórásin, Bylgjan, LéttBylgjan, GullBylgjan, FM Extra, FMX, 80’s Bylgjan, FM957, X-ið, Sjónvarp Símans, K100, Retro, Sjónvarp Hringbrautar, Útvarp Hringbrautar FM89,1 

Þá eru aðrir einkareknir fjölmiðlar í tilkynningunni hvattir til að taka þátt í aðgerðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert