Þykjast vera á vegum Þroskahjálpar

Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Tveir karlmenn hafa undanfarna daga safnað dósum í Reykjanesbæ, en þeir ganga í hús og segjast vera á vegum Þroskahjálpar. Lögreglan á Suðurnesjum skrifar á Facebook-síðu sína nú í kvöld að rétt sé að benda á að engin slík dósasöfnun fari fram í nafni Þroskahjálpar.

Samkvæmt færslu lögreglunnar hafa mennirnir tveir gengið milli húsa og bankað upp á og óskað eftir dósum vegna málstaðar Þroskahjálpar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert