Áfram varðhald vegna ítrekaðra brota gegn mæðgum

Hæstiréttur íslands
Hæstiréttur íslands mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Karlmaður hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald þangað til dómur fellur í máli hans, en ekki síðar en 22. september. Maðurinn hef­ur ít­rekað brotið nálg­un­ar­bann og brott­vís­un af heim­ili stjúp­dætra sinna og móður þeirra, sem jafn­framt er eig­in­kona manns­ins. Þá er maður­inn grunaður um að hafa í ár­araðir brotið gegn mæðgun­um með ít­rekuðum kyn­ferðis­brot­um, lík­am­legu of­beldi og hót­un­um.

Maðurinn var í mars dæmdur í nálgunarbann fyrir áreiti gegn mæðgunum og í júní var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna ítrekaðra brota á nálgunarbanninu. Síðan þá hefur maðurinn reynt að hafa samband við og áreita konurnar, en hann fékk meðal annars vin­konu sína til að bera handskrifuð bréf frá sér til kvenn­anna þriggja og setja dag­lega í póst­kassa þeirra með und­ir­skrift­inni „X“.

Frétt mbl.is: Grunaður um kynferðisafbrot í áraraðir

Í úrskurði héraðsdóms sem birtur var á vef Hæstaréttar í dag kemur fram að maðurinn hafi þar að auki reynt að senda þrjú bréf til mæðranna úr fangelsi sem fangelsisyfirvöld hafi stoppað og komið áleiðis til lögreglu.

Héraðsdómur telur rétt að framlengja varðhald yfir manninum í ljósi þess að líklegt sé að hann muni áfram brjóta af sér gangi hann laus. Segir í úrskurðinum að hann hafi sýnt af sér„einbeittan brotavilja“ í málinu og að líklega muni hann „halda áfram brotum sínum gagnvart þeim mæðgum fari hann frjáls ferða sinna“.

Hæstiréttur staðfesti þennan úrskurð héraðsdóms og segir að manninum sé í „sextán liðum gefin að sök ýmis brot gegn almennum hegningarlögum nr. 19/1940, þar á meðal í tveimur liðum nauðgun samkvæmt 1. mgr. 194. gr. laganna. Hefur aðalmeðferð málsins verið ákveðin 13. september 2016. Að þessu gættu, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert