Börnin dvelji ekki í „sársveltum“ rekstri

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hitti leikskólastjóra í dag.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hitti leikskólastjóra í dag. mbl.is/Golli

Hafin er undirskriftasöfnun þar sem skorað er á borgaryfirvöld að snúa vörn í sókn í leikskóla- og skólamálum.

„Nú þegar nýjasta uppgjör borgarinnar sýnir merki um viðsnúning er einmitt tækifærið til að standa vörð um skólakerfið. Við neitum að láta börnin í borginni dvelja í sársveltum rekstri og krefjumst þess að forgangsraðað verði á nýjan hátt með aðbúnað þeirra og gæði skólastarfsins að leiðarljósi,“ segir á vef undirskriftasöfnunarinnar. 

Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega þrjú hundruð manns skrifað undir. 

Mik­ill hiti var í leik­skóla­stjórn­end­um er þeir af­hentu Degi B. Eggerts­syni borg­ar­stjóra harðorða álykt­un í Ráðhús­inu fyrir hádegi í dag. 

Frétt mbl.is: Skora á borgaryfirvöld að endurskoða fjárveitingar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert