Eitt kynferðisbrot var kært hjá lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum í tengslum við Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2016. Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn Helga Hrafns Gunnarssonar, þingmanns Pírata.
Helgi spurði hversu margar tilkynningar um kynferðisbrot annars vegar og kærur vegna kynferðisbrota hins vegar hefðu borist lögregluyfirvöldum í tengslum við Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 2016.
Ekki eru sundurliðuð fleiri kynferðisbrot en það sem var kært í svarinu, en það átti sér stað 1. ágúst, á mánudeginum, og var kært sama dag.