Listeria monocytogenes greindist við reglubundið innra eftirlit í pakkningu af Matfugls-kjúklingastrimlum. Af þeim sökum hefur Matfugl ákveðið að innkalla vöruna í varúðarskyni.
Innköllunin nær eingöngu til pakkninga með lotunúmerinu 3101126331 með best fyrir dagsetninguna 03.09.2016.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að skila henni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem innköllunin kann að valda neytendum, að því er segir í tilkynningu.
Nánari upplýsingar um Listeria monocytogenes.