Ráðist var á mann með með barefli í miðborginni rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Hann slasaðist nokkuð og var fluttur á sjúkrahús, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Nokkur vitni urðu á árásinni og gátu bent lögreglu á hvar árásaraðilann var að finna. Hann er nú vistaður í fangageymslu.
Alls eru tíu vistaðir í fangageymslu í nótt vegna margvíslegra brota en að sögn lögreglu var nóttin frekar róleg.