Þjóðaröryggisráð samþykkt á þingi

Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra. UN Photo/Rick Bajornas

Alþingi samþykkti í dag frumvarp um þjóðaröryggisráð, en því er m.a. ætlað að hafa eftirlit með framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og vera samráðsvettvangur um þjóðaröryggismál. Þá er ráðinu ætlað að meta ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum og fjalla um önnur málefni sem varða þjóðaröryggi.

Í þjóðaröryggisráði eiga fast sæti forsætisráðherra, sem er formaður ráðsins, utanríkisráðherra, innanríkisráðherra og ráðuneytisstjórar ráðuneytanna þriggja. Þá eiga sæti tveir þingmenn, annar úr þingflokki sem skipar meirihluta og hinn úr þingflokki sem skipar minnihluta. Einnig sitja í ráðinu forstjóri Landhelgisgæslunnar, ríkislögreglustjóri og fulltrúi Landsbjargar.

Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu gera lögin ráð fyrir „að þjóðaröryggisráð, í samvinnu við háskólasamfélagið, hugveitur og fjölmiðla, beiti sér fyrir opinni og lýðræðislegri umræðu um þjóðaröryggismál. Þjóðaröryggisráð mun á ári hverju upplýsa Alþingi um framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar og upplýsa utanríkismálanefnd þingins um hver þau mál sem líkleg eru til að hafa áhrif á þjóðaröryggisstefnuna og framkvæmd hennar“.

„Þetta eru söguleg tíðindi. Í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins er til staðar þjóðaröryggisstefna og þjóðaröryggisráð sem horfir með heildstæðum hætti á öryggismál og þær margbreytilegu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Frumvarpið tók jákvæðum breytingum í meðförum þingsins og það er sérstaklega ánægjulegt að frumvarpið sé afgreitt í breiðri sátt á Alþingi og afar þýðingarmikið þegar um slíkt grundvallarmál er að ræða,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráðherra í tilkynningunni.

„Ég er stolt af því að smiðshöggið hafi verið rekið á þetta mikilvæga verk með breiðri pólitískri samstöðu. Fjórir utanríkisráðherrar í þremur ríkisstjórnum hafa komið að því starfi með dyggri leiðsögn þingsins á hverjum tíma. Við byggjum því á traustum grunni í þeirri vegferð sem framundan er,“ segir Lilja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert