Landsmenn ánægðir með Guðna

Guðni Th. Jóhannesson ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid.
Guðni Th. Jóhannesson ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid. mbl.is/Júlíus

Mikil ánægja ríkir með störf Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, í nýrri könnun MMR, en þetta er fyrsta könnunin sem er framkvæmd eftir að Guðni náði kjöri. Alls kváðust 68,6% þátttakenda vera ánægð og hefur ánægja með störf forseta ekki mælst jafnmikil frá því MMR hóf slíkar mælingar.

Fram kemur í tilkynningu frá MMR, að einungis 6,4% segjast vera óánægð með störf Guðna sem forseta Íslands.

Spurt var: „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með störf Guðna Th. Jóhannessonar sem forseta Íslands?“

Svarmöguleikar voru: „Mjög ánægð(ur), ánægð(ur), hvorki ánægð(ur) né óánægður, óánægð(ur), mjög óánægð(ur) og veit ekki/vil ekki svara.“

Samtals tóku 95,0% afstöðu til spurningarinnar.

„Ánægja með störf Guðna Th. Jóhannessonar sem forseta reyndist mismunandi eftir stuðningi við stjórnmálaflokka, en þau sem studdu ríkisstjórnarflokkana mældust nokkuð óánægðari með störf forseta en þau sem studdu aðra stjórmálaflokka. Ánægðastir voru stuðningsmenn Samfylkingunar en 96% þeirra kváðust vera ánægð með störf Guðna Th. Jóhannessonar,“ segir í tilkynningu.

Rétt er að geta þess að MMR var stofnað 1. desember 2006 og hefur því ekki mælt ánægju með aðra forseta en Ólaf Ragnar Grímsson og Guðna Th. Jóhannesson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert