Höfðu nætursetu undir brú í Kópavogi

Ferðamennirnir komu sér fyrir í svefnpokum undir brúnni ásamt farangri …
Ferðamennirnir komu sér fyrir í svefnpokum undir brúnni ásamt farangri sínum, sem inniheldur meðal annars tvö hjól. Ljósmynd/aðsend

Það virtist fara frekar vel um tvo einstaklinga sem voru dúðaðir í svefnpokum og sængum undir einni brúnni í Kópavogi í morgun. Einstaklingarnir virðast hafa haft nætursetu undir brú rétt fyrir ofan Smáralind síðustu nótt. Þeir höfðu komið sér vel fyrir í nokkrum svefnpokum. Auk þess má sjá tvö hjól við næturstaðinn.

Lögreglan í Kópavogi telur líklegt að um ferðamenn sé að ræða, en hafði þó ekki haft afskipti af þeim þegar mbl.is hafði samband. Lögreglan kannaðist ekki við að mál af svipuðum toga hafi komið upp áður, það er að ferðamenn geri sér brýr að gististöðum í bænum.

Brúin er staðsett rétt fyrir ofan Smáralind.
Brúin er staðsett rétt fyrir ofan Smáralind. Ljósmynd/aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert