Tónleikagestir fluttir á sjúkrahús

Justin Bieber á sviði Kórsins á fimmtudagskvöld.
Justin Bieber á sviði Kórsins á fimmtudagskvöld. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Þrír einstaklingar sem sóttu tónleika Justins Bieber í Kórnum í gærkvöldi þurftu á aðhlynningu að halda á meðan á tónleikunum stóð og voru þeir fluttir á sjúkrahús.

Einn til viðbótar var fluttur á sjúkrahús eftir tónleikana. 

Nokkur önnur tilvik voru afgreidd á staðnum. Öll atvikin voru minniháttar, að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. 

Tveir voru jafnframt fluttir á sjúkrahús af fyrri tónleikum Biebers á fimmtudagskvöld, auk þess sem þrír voru fluttir af svæðinu eftir tónleikana. Þau tilvik voru heldur ekki alvarleg, að sögn slökkviliðsins.

Frétt mbl.is: Á heimleið eftir tónleika Biebers

Frétt mbl.is: Hreppti klút Biebers á tónleikunum

mbl.is/Hjörtur
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert