Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært 11 ökumenn fyrir hraðakstur. Þar af voru átta sem óku of hratt í nágrenni við skóla, þar sem hámarkshraði er alla jafna 30 km á klukkustund.
Á Reykjanesbraut mældist sá sem hraðast ók á 136 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
Þá voru tveir ökumenn til viðbótar færðir á lögreglustöð þar sem sýnatökur staðfestu neyslu fíkniefna.