Ísleifur fær rúmar sex milljónir

Landakotsskóla hefur nú verið breytt í sjálfseignarstofnun.
Landakotsskóla hefur nú verið breytt í sjálfseignarstofnun. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Ríkið hefur ákveðið að veita Ísleifi Friðrikssyni 6.048.870 krónur í sanngirnisbætur vegna illrar meðferðar og ofbeldis sem hann varð fyrir af hálfu starfsmanna kaþólsku kirkjunnar í Landakotsskóla.

Í Fréttatímanum kemur fram að þetta hafi verið staðfest með bréfi í gær.

Ísleifur var sá sem fyrstur rauf þögnina um ofbeldið gagnvart börnum innan kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Það gerði hann í nafnlausu viðtali í Fréttatímanum árið 2011. Þar lýsti hann kynferðislegu- og andlegu ofbeldi sem hann varð fyrir af hálfu séra Georges og Margrétar Müller alla skólagöngu sína í Landakotsskóla, frá 7 ára til 13 ára aldurs.

Kaþólska kirkjan hafði áður boðið honum 170 þúsund krónur vegna málsins en Ísleifur sagðist í viðtali við Kastljós á þeim tíma ekki ætla að þiggja peninginn.

Ísleifur Friðriksson í viðtali við Kastljós á sínum tíma.
Ísleifur Friðriksson í viðtali við Kastljós á sínum tíma. Skjáskot/Kastljós
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert