Anna Sigurlaug í skýjunum

Hjónin Anna Sigurlaug Pálsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Hjónin Anna Sigurlaug Pálsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Mynd/Eva Björk Ægisdóttir

Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, brosti hringinn þegar blaðamaður mbl.is náði af henni tali eftir að kunngert var að Sigmundur hlaut yfirburðakosningu í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi þar sem hann fékk tæp 73% greiddra atkvæða.

„Ég þorði nú ekki að vera alveg svona bjartsýn,“ segir Anna Sigurlaug sem er ánægð með sinn mann. „Ég hafði óbilandi trú á honum og var alveg sannfærð um að hann fengi góða kosningu en þetta fór fram úr mínum björtustu vonum, ég skal alveg viðurkenna það,“ segir Anna Sigurlaug sem kveðst jafnframt bjartsýn á gott gengi Sigmundar í komandi formannskjöri flokksins.

Frétt mbl.is: Sigmundur með afgerandi forystu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert