Stóðst ekki mátið og spjallaði við Ban á kóresku

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðuneytið

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segist ekki hafa staðist mátið og spjallað við Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, á kóresku þegar hún hitti hann í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Lilja bjó um tíma í Suður-Kóreu.

„Þegar ég bjó í Suður-Kóreu var Ban Ki-moon rísandi stjarna í heimi þarlendra embættismanna. Hann átti síðar eftir að verða sendiherra, utanríkisráðherra og að lokum framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Í árslok lætur hann af því embætti eftir 10 ára farsælt starf.

Það var mér sannur heiður að funda með honum í höfuðstöðvum samtakanna í New York og ég stóðst ekki mátið og reyndi að spjalla aðeins á kóresku. Hann gladdist og svaraði í sömu mynt, en færði sig fljótlega yfir í ensku,“ skrifar Lilja á Facebook í morgun.

Jafnréttismál, staða flóttamanna og umhverfismál voru meðal þess sem Lilja og Ban K ræddu á fundi sínum í höfuðstöðvum SÞ seinnipartinn í gær. Umræður  á allsherjarþingi  SÞ hefjast á morgun en það sækja margir helstu ráðamenn heims til að ræða brýnustu áskoranir alþjóðasamfélagsins, og því mikið um að vera í höfuðstöðvunum þessa vikuna.

Ban Ki-moon færði  Íslendingum sérstakar þakkir fyrir að tala fyrir jafnréttismálum og leggja SÞ lið í því mikilvæga verkefni.  

Lilja upplýsti hann um þingsályktunartillögur um fullgildingu Íslands á Parísarsamkomulaginu og samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks, sem hún lagði fyrir Alþingi fyrr í mánuðinum. Báðar tillögurnar verða teknar til síðari umræðu á Alþingi í dag.

Þá ræddu þau norðurslóðamál og loftslagsmál sem Ban Ki-moon hefur látið sig miklu varða. Þau verða meðal þess sem rætt verður á Hringborði Norðurslóða í byrjun október í Reykjavík en framkvæmdastjórinn er væntanlegur til Íslands, m.a.  til að taka þátt í því.

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert