Fannst látinn

Leitinni að Guðmundi L Sverrissyni, sem staðið hefur yfir frá því í gærmorgun, er lokið. Guðmundur fannst látinn í flæðarmálinu í Örlygshöfn nú rétt fyrir hádegið í dag.

Rannsókn á tildrögum andlátsins er í höndum lögreglunnar á Vestfjörðum og er ótímabært að gefa út frekari upplýsingar um málið.

Lögreglan á Vestfjörðum þakkar þeim fjölmörgu björgunarsveitarmönnum sem komu að leitinni. Þá ber að þakka atvinnurekendum þessara sjálfboðaliða. Að leitinni komu leitarhópar frá Norðurlandi, Vestfjörðum, Vesturlandi, Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu auk landsstjórnar Landsbjargar, sem og starfsmenn Landhelgisgæslunnar, að því er fram kemur í tilkynningu.

Frétt mbl.is: Guðmundar enn leitað

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert