Lýsa eftir Söndru Rún Raybold

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samstarfi við lögregluna á Akureyri og barnavernd Reykjavíkur, lýsir eftir Söndru Rún Raybold. Sandra Rún er 15 ára gömul, fædd árið 2001. Hún er 160 cm há, grönn og með ljóst sítt hár.

Sandra Rún er með pinna í nefi og vör. Ekki er vitað um klæðnað hennar en þó er talið að hún sé í svartri úlpu. Sandra Rún fór frá Laugalandi í Eyjafirði um kvöldmatarleytið á miðvikudag.

Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hvar hana er að finna, eða vita um ferðir hennar síðan um kvöldmat á miðvikudag, er bent á að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 444-2805 eða með tölvupósti á 8420@lrh.is. Ef um er að ræða upplýsingar um hvar hún er stödd núna, má hringja í 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert