Tíu stöðvaðir fyrir hraðakstur

Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í dag tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá þeirra sem hraðast ók var á 133 km hraða, en að aðrir sem stöðvaðir voru óku á um 120 km hraða.

Ökumennirnir voru að þessu sinni bæði íslenskir og erlendir, en að sögn lögreglunnar á Blönduósi er almennt meira um að erlendir ökumenn séu stöðvaðir í umdæminu vegna hraðaksturs.

Ökumennirnir tíu voru að vonum sektaðir fyrir hraðaksturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert