Guðjón leiðir í Norðvesturkjördæmi

Guðjón S. Brjánsson.
Guðjón S. Brjánsson. mbl.is/RAX

Guðjón S. Brjánsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, leiðir lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.

Listi flokksins var samþykktur í dag og skipar Inga Björk Bjarnadóttir háskólanemi annað sætið og Hörður Ríkharðsson það þriðja. Pálína Jóhannsdóttir kennari er í fjórða sæti og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir verkefnisstjóri í fimmta sæti.

Guðjón hlaut flest atkvæði í prófkjöri sem haldið var í kjördæminu nú fyrr í mánuðinum, en Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hafnaði í þriðja sæti og tilkynnti hún í kjölfarið að hún myndi ekki taka sæti á listanum. 

Frétt mbl.is: Ekki á lista Samfylkingarinnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert