Miklir kraftar að verki í Jökulsárlóni

Ísjakinn er feiknastór eins og sjá má.
Ísjakinn er feiknastór eins og sjá má. Skjáskot úr myndbandinu

Meðfylgjandi myndskeiði náði erlendur ferðamaður sem hér var á landi nýlega, þegar hann var í bátsferð um Jökulsárlón. Á myndskeiðinu má sjá hvar feiknastór ísjaki, sem var á floti í lóninu, tekur skyndilega að veltast.

Ljóst má vera að miklir kraftar eru þarna að verki og þarf kannski ekki að undra það að ferðamennirnir heyrast spyrja hvort hætta stafi af ísjakanum. Sjón er sögu ríkari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert