Tveir bílar höfnuðu utan vegar í Víkurskarði um klukkan tólf í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri virðist ökumaður annars bílsins, sem var á leið til Akureyrar, hafa sofnað undir stýri og farið yfir á öfugan vegarhelming. Hinn bíllinn kom úr gagnstæðri átt og átti ökumaðurinn ekki aðra úrkosti en að lenda í árekstri eða að aka út af, sem hann gerði.
Alls voru þrír farþegar í báðum bílunum og eru þeir allir af erlendu bergi brotnu. Sjúkrabíll mætti á svæðið en farþegarnir voru allir útskrifaðir af sjúkraflutningamönnum á vettvangi.
Báðir bílarnir eru sennilega óökufærir eftir óhappið.