Sendir frá sér skáldævisögu

Guðrún Eva Mínervudóttir.
Guðrún Eva Mínervudóttir. mbl.is/Golli

Von er á nýrri skáldsögu frá Guðrúnu Evu Mínervudóttur í lok október en sagan er öðrum þræði skáldævisaga, þar sem hluti hennar byggir á ævi höfundar og helstu persónur eiga sér raunverulegar fyrirmyndir.

Skáldsagan mun bera heitið Skegg Raspútíns en það er Bjartur sem gefur út.

Skegg Raspútíns segir frá ungu hjónunum Evu og Matta. Þau hafa nýlega umbylt lífi sínu og flutt úr miðborginni til smábæjar utan borgarmarkanna, en sitja samt uppi með sjálf sig og hvort annað. Vandamálin vaxa og óveðursský hrannast upp. Þá kynnist Eva rússneskumælandi garðyrkjubónda, Ljúbu, sem segir henni litríka sögu sína og fjölskyldunnar. Sögur kvennanna tveggja spegla hvor aðra og vinátta þeirra hefur mikil áhrif á líf beggja. Úr verður margbrotin frásögn, skrifuð af þeim hlýja mannskilningi sem einkennir verk Guðrúnar Evu – um hlutskipti kvenna, samskipti kynjanna, örlög, frumkvæði, nánd og þau sannindi sem draumar geyma,“ segir í tilkynningu frá Bjarti.

Guðrún Eva hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2011 fyrir Allt með kossi vekur, og Menningarverðlaun DV í bókmenntum fyrir Yosoy árið 2006 og Englaryk árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert