Þrír bílar skullu saman í Kollafirði

Meiðsl á fólki voru minni háttar.
Meiðsl á fólki voru minni háttar. mbl.is/Hjörtur

Þrír bílar skullu saman í Kollafirði um fjögurleytið í dag. Einn var fluttur á slysadeild með minni háttar meiðsl. Ekki var þörf á slökkviliði á staðinn.

Þá var aftanákeyrsla við Stekkjarbakka í Breiðholti um hálfeittleytið í dag. Þar var einnig ein manneskja flutt á slysadeild með minni háttar meiðsl. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru einhverjar umferðartafir á svæðinu vegna árekstursins í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert