Óttaðist að gæsirnar færu sér að voða

Gæsir virða ekki alltaf umferðareglur okkar mannanna, líkt og þessi …
Gæsir virða ekki alltaf umferðareglur okkar mannanna, líkt og þessi gæsahópur sem var á gangi yfir götuna hjá mislægum gatnamótunum við Mjóddina. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fæst við hin fjölbreyttustu mál í daglegu starfi sínu og ekki eru þau öll tengd lögbrotum. Þannig barst lögreglu um hálfeittleytið í dag beiðni um aðstoð vegna gæsahóps sem var staddur á gatnamótum Ármúla og Vegmúla.

Sá sem hafði samband við lögreglu taldi gæsahópinn geta farið sér að voða, auk þess sem vera hans á gatnamótunum gæti skapað slysahættu í umferðinni.

Er á staðinn var komið reyndist hins vegar ekki tilefni til aðgerða af hálfu lögreglu, enda voru gæsirnar hinar rólegustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert