Reyndi að opna bíla við Brimborg

Innbrotsþjófur braut sér leið inn á heimili í Garðabæ um kl. 2.50 í nótt en hafði sig á brott þegar húsráðandi, sem var vakandi, kom að. Ekki er talið að þjófurinn hafi náð að hafa verðmæti á brott með sér en tjón varð á gluggabúnaði og var smiður fenginn á vettvang til að birgja gluggann.

Um kl. 2 var lögreglu tilkynnt að einstaklingur væri að reyna að opna bifreiðar við Brimborg á Bíldshöfða. Á vettvangi hafði lögregla afskipti af ungri konu sem svaraði til lýsingar. Konan var með ætluð fíkniefni á sér og var málið afgreitt á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert