Alelda bíll í sandgryfju

Bíll sem var óskráður varð alelda í sandgryfju skammt frá Ölfusréttum. Tveir unglings höfðu verið að keyra bílinn um gryfjurnar er eldur kom upp í mælaborði. Atvikið átti sér stað á þriðjudag í síðustu viku. Þegar slökkvilið Brunavarna Árnessýslu kom á vettvang var bifreiðin alelda. Um gamlan fólksbíl var að ræða. 

Í dagbók lögreglunnar á Suðurlandi er það sérstaklega tekið fram að í síðustu viku hafi engin hegningarlagabrot endað á borði hennar. Það sé gleðilegt einsdæmi.

Í dagbókinni kemur fram að húsleit var gerð í íbúð á Höfn um helgina. Tveir karlmenn voru handteknir. Þeir framvísuðu hvítu dufti sem mennirnir sögðu vera fæðubótaefni. Einnig var lagt hald á nokkuð af sveppum. Mennirnir voru yfirheyrðir og látnir lausir að því loknu. Efni og sveppir verða sendir í efnarannsókn og niðurstaða úr henni mun skera úr um framhald málsins.

Kona var handtekin í Hveragerði á föstudag vegna gruns um að hún hefði í vörslum sínum fíkniefni. Í veski sem hún bar fannst lítilræði af amfetamíni. Konan var látin laus að lokinni yfirheyrslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert