Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu á Reykjanesbraut um klukkan hálf tvö í dag. Ökumaðurinn var einn í bílnum, en ekki er ljóst hvort meiðsl hans séu alvarleg samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Bíllinn fór út af veginum vestanmegin við Grindavíkurafleggjarann, en ekki er vitað nánar um tildrög slyssins. Unnið er að rannsókn á slysstað.