„Ekki beint geðslegt“

Saurgerlar fundust í neysluvatni Súðvíkinga.
Saurgerlar fundust í neysluvatni Súðvíkinga. mbl.is/Golli

„Maður vonar að þetta sé tilfallandi og verði fljótt að ganga yfir. Manni finnst þetta ekki beint geðslegt,“ segir Guðrún Guðný Elíasdóttir Long, íbúi í Súðavík, en tilkynnt var um það í morgun að saurgerlar hefðu fundist í neysluvatni í bænum. 

Hefur verið á fullu að sjóða vatn í dag

Á vef heilbrigðiseftirlits Vestfjarða kemur fram að sýni hafi verið tekið síðastliðinn fimmtudag en niðurstöður leiddu í ljós að vatnið stæðist ekki gæðakröfur vegna kólígerla og saurgerla (E.coli). Í tilkynningu sem birtist á vef sveit­ar­fé­lags­ins í morg­un sagði að til­kynn­ing um þessa niður­stöðu hafi borist í morg­un.

Af þess­um sök­um voru íbú­ar Súðavík­ur beðnir um að sjóða allt neyslu­vatn í varúðarskyni. Guðrún segist hafa soðið mikið vatn og sett í vatnsflöskur inn í ísskáp í dag. „Maður er svo vanur að geta skrúfað frá krananum og fengið sér kalt vatn og drukkið. Ég drekk svo mikið vatn að ég er búin að vera að sjóða vatn á fullu í dag,“ segir hún.

Óvenjulegt að saurgerlamengun komi upp í borholuvatni

Guðrún segir fréttirnar í morgun hafa komið sér verulega á óvart. „Maður hefði skilið þetta ef um hefði verið að ræða opið vatnsból en þar sem við erum með borholur er maður ferlega hissa að heyra af þessu,“ segir Guðrún. Hún segir þetta vera í fyrsta skipti sem hún muni eftir að mál sem þetta komi upp. „Auðvitað kom ýmislegt upp þegar hérna voru opin vatnsból. Þá voru dauðar rollur og fuglar stundum að enda þar. En eftir að við fengum þessar borholur hélt maður að þetta væri búið.“

Íbúar í Súðavík voru í morgun beðnir um að sjóða …
Íbúar í Súðavík voru í morgun beðnir um að sjóða allt neysluvatn. AFP

Ant­on Helga­son, fram­kvæmda­stjóri heil­brigðis­eft­ir­lits Vest­fjarða, segir að óvenjulegt sé að saurgerlamengun af þessu tagi komi upp í borholuvatni. Önnur sýni hafi hins vegar verið tekin í dag og staðan komi betur í ljós þegar niðurstöður úr þeim verða ljósar.

Pétur G. Markan, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir að þær niðurstöður muni koma í ljós á morgun. „Við erum með borholuvatn og svona hefur aldrei mælst hjá okkur en það kemur í ljós með þessum seinni prufum á morgun hvar meinið er,“ segir hann. „Þetta er samt jákvætt að því leyti að þetta sýnir okkur hvað eftirlitið er mikið á svæðinu.“

Hefði mátt láta íbúa vita með skýrari hætti

Þá segist Guðrún hafa verið hissa á því að íbúar hefðu ekki verið látnir vita með öðrum hætti í morgun en í gegnum netið. „Nú búa tengdaforeldrar mínir við hliðina á okkur og þau eru ekki mikið á netinu. Manni hefði þótt eðlilegra að það hefði verið farið með miða til eldra fólks til dæmis,“ segir hún. Auk tilkynningarinnar á vef sveitarfélagsins var fjallað um málið í hádegisfréttum, en íbúar voru ekki látnir vita með öðrum hætti.

„Það er ekki eins og þetta sé mörg þúsund manna bær. Það væri vel hægt að taka upp símann og hringja í hvern og einn fyrir sig. Maður veit að það er slatti af eldra fólki sem er ekki að lesa fréttir á netinu og svo eru líka útlendingar hér sem skilja kannski ekki íslensku,“ segir Guðrún. Þá segir hún einnig að harðfiskverkunin í bænum hafi ekki fengið neina sérstaka tilkynningu, þrátt fyrir að mikið af vatni sé notað í versmiðjunni. „Maður hefði haldið að það ætti að hafa samband við matvælaframleiðslu.“

Pétur Markan, sveitarstjóri Súðarvíkurhrepps.
Pétur Markan, sveitarstjóri Súðarvíkurhrepps. ljósmynd/Þröstur Már

Pétur segir að tekin hafi verið ákvörðun um að setja fréttirnar á vef sveitarfélagsins og á Facebook, en þar sem ekki hafi verið tekin tvöföld sýnataka hafi verið ákveðið að bíða með frekari tilkynningar. „Þessu getur auðvitað fylgt ákveðið rask svo við verðum að feta milliveginn á meðan við bíðum eftir staðfestingu þetta,“ segir hann. „En ef það reynist vera mengun í vatninu munum við setja öll viðvörunarljós af stað. Það þarf yfirleitt tvær sýnatökur svo við erum bara að bíða eftir því núna.“

Engin tengsl milli saurgerlamengunarinnar á Flateyri og í Súðavík

Fyrr í haust bár­ust frétt­ir af því að neyslu­vatn á Flat­eyri hefði verið mengað af saur­gerl­um í 16 daga án þess að íbú­ar bæj­ar­fé­lags­ins væru upp­lýst­ir um það. Ant­on seg­ir að eng­in tengsl séu á milli saur­gerla­meng­un­ar­inn­ar á Flat­eyri ný­verið og Súðavík­ur nú. Þar er uppistöðuvatn en í Súðavík er borholuvatn. Meng­un­ina á Súðavík megi hugsanlega rekja til mik­ill­ar úr­komu að und­an­förnu. Enn sé þó of snemmt að segja til hvað valdi meng­un­inni núna.

Áður hafi íbú­ar ekki verið upp­lýst­ir fyrr en það hef­ur legið ljóst fyr­ir að um meng­un sé að ræða, það er við aðra sýna­töku, því það geti alltaf eitt­hvað komið upp við sýna­töku sem geri það að verk­um að niðurstaðan sé kannski rétt. En greini­legt sé að fólk vilji fá upp­lýs­ing­ar strax og því verði það þannig í framtíðinni að til­kynn­ing verður send út um leið og grun­ur leik­ur á að um saur­gerla­meng­un sé að ræða.

„Þetta tók auðvitað alltof langan tíma á Flateyri svo mér finnst sveitarfélagið vera að bregðast mjög hratt við í þessu tilviki. En við gátum lært af þeirra reynslu,“ segir Pétur.

Frétt mbl.is: Saurgerlar í vatni Súðvíkinga

Frétt mbl.is: Vissu af saur­gerla­meng­un á Flat­eyri 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert