Lögreglan hafði afskipti af húsráðanda íbúar í Garðabæ í nótt en ítrekað hefur verið tilkynnt um partýhávaða frá íbúðinni undanfarna daga. Húsráðandi heimilaði leit í íbúðinni og fundust þar ætluð fíkniefni. Málið afgreitt á vettvangi, að sögn lögreglu.
Seint í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í skóla í austurhluta Reykjavíkur. Þar hafði gluggi verið spenntur upp og farið inn. Ekki er vitað hverju var stolið en málið er í rannsókn lögreglu.
Um tvö í nótt hafði lögregla afskipti af ölvaðri ungri konu á heimili í vesturbænum þar sem hún var gestkomandi. Konan er vistuð í fangageymslu lögreglu þangað til ástand hennar batnar.