Í aðgerðaáætlun fyrir Vestfirði er meðal annars lagt til að miðstöð fiskeldis verði staðsett á Vestfjörðum.
„Sú þekking sem verður til í kringum nýja atvinnugrein eins og fiskeldið á að vera þar sem þungamiðjan er,“ segir Pétur G. Markan, sveitarstjóri í Súðavík og formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga, um þessa tillögu í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í dag.
Hann kveðst telja auðveldara og raunhæfara til að styrkja byggðirnar að staðsetja nýjar stofnanir úti á landi í stað þess að flytja þangað rótgrónar ríkisstofnanir. Pétur segir samgöngur vera afar mikilvægar, ekki síst fyrir þá uppbyggingu sem sé fyrir dyrum.