Sem flestir semji um kjör sín

Félag starfsmanna Alþingis telur að rétt sé að sem flestar starfsstéttir semji um kjör sín með beinum samningum. Þetta kemur fram í umsögn stjórnar félagsins um lagafrumvarp Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um breytingar á starfsemi kjararáðs.

Fram kemur í umsögninni að Félag starfsmanna Alþingis ítreki þar með afstöðu félagsins sem fram hafi komið í umsögnum þess um önnur lagafrumvörp sem varðað hafa kjararáð. Félagið geri að öðru leyti ekki athugasemdir við frumvarpið enda skammur fyrirvari til þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert