Árásarmaðurinn er íslenskur

Íslendingurinn beit stórt stykki úr eyra mannsins.
Íslendingurinn beit stórt stykki úr eyra mannsins. Skjáskot af bz-berlin.de

Maðurinn sem beit stykki úr eyra manns í lest í Þýskalandi er Íslendingur. Utanríkisráðuneytið staðfesti það í samtali við mbl.is fyrir stundu en árásarmaðurinn er í varðhaldi ytra.

Frétt mbl.is: Árásarmaðurinn sagður norskur

Eins og fram hefur komið sat fórnarlambið, Alexander B, í lestinni þegar Íslendingurinn kallaði sessunaut hans Bin Laden upp úr þurru. Hrópaði Íslendingurinn að sessunaut Alexanders að hann ætti að hrópa upp „Allahu Akbar“ og kveikja á sprengjunni.

Alexander reyndi að stíga á milli átaka en Íslendingurinn beit þá stórt stykki úr eyra hans. Árásarmaðurinn verður leiddur fyrir dómara á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert