Kjöt, grænmeti og ávextir hækka mest

Grænmeti og ávextir hafa hækkað í verði hjá sex verslunum …
Grænmeti og ávextir hafa hækkað í verði hjá sex verslunum af 11. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði í sjö verslunum frá því í júní 2016 þar til nú í september, mesta hækkunin 2%, er hjá Iceland. Í fjórum verslunum hefur vörukarfan lækkað í verði. 

Mest hækkar karfan um 2% hjá Iceland, 1,4% hjá Kjarval, 0,9% hjá Víði, 0,6% hjá Nettó, 0,4% hjá Bónus og um 0,2% hjá Krónunni og Samkaupum-Strax. Mesta lækkunin á tímabilinu var 1% hjá Hagkaupum og 10/11, 0,7% hjá Samkaupum-Úrval og 0,3% hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Litlar breytingar í öllum vöruflokkum

 Mestu verðbreytingarnar eru að þessu sinni í vöruflokknum kjötvörur og á grænmeti og ávöxtum. Kjötvörur hafa lækkað í verði hjá 6 verslunum af 11, mesta lækkunin var 4,5% hjá Bónus og um 2,4-3% hjá Krónunni, Víði og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga en lækkunin var aðeins minni hjá Samkaupum-Úrval og 10/11. Hækkaði vöruflokkurinn um 9,3% hjá Hagkaupum, 6,9% hjá Iceland, 6,3% hjá Nettó en minna hjá Samkaupum-Strax og Kjarval.

Grænmeti og ávextir hafa hækkað í verði hjá sex verslunum af 11, mest um 9,3% hjá Bónus, 8,9% hjá Krónunni, 7,8% hjá Víði, 6,2% hjá Samkaupum-Úrval og um 4,7% hjá Iceland en minnst hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga eða um 3,7%. Mesta lækkunin í vöruflokknum var 4,8% hjá 10/11 og 2,6% hjá Hagkaupum en minni lækkun hjá Nettó, Kjarvali og Samkaupum-Strax.

Vöruflokkurinn ýmsar matvörur (sem innihalda m.a. sósur, krydd, fisk og feitmeti) hefur lækkað í verði hjá níu verslunum af 11, mest um 9,1% hjá Hagkaupum, 5,6% hjá Nettó, á bilinu 2-3% hjá Bónus, Krónunni, 10/11, Víði og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga og minna en 1% hjá Iceland og Kjarval, en hækkar hjá Samkaupum-Úrval og Samkaupum-Strax.

Vöruflokkurinn mjólkurvörur, ostar og egg hefur hækkað hjá 8 verslunum af 11 um allt að 3,2%. Hjá þremur verslunum lækkaði verðið milli mælinga hjá Krónunni, Samkaupum-Úrval og Víði. 

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu hennar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kjarval, og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert