Neyðarlínunni barst tilkynning um ellefuleytið í gærkvöldi um að karlmaður hafi ekki skilað sér til baka eftir gönguferð á Esjuna, en maðurinn hafði orðið viðskilja við félaga sinn í myrkrinu.
Björgunarsveitir ræstar út og fundu þær manninn heilann á húfi skömmu síðar. Maðurinn var þá orðinn nokkuð kaldur, enda hafði var hann illa búinn til fjallgöngu.