Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa í október á síðasta ári veist með ofbeldi að lögreglumanni og slegið hann höggi í andlitið. Samkvæmt ákæru náði lögreglumaðurinn að víkja sér undan högginu að mestu.
Er þess krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.