Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi

Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull. Mýrdalsjökull er fjær.
Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull. Mýrdalsjökull er fjær. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ríkislögreglustjórinn í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur ákveðið að virkja viðbragðsáætlun vegna eldgoss undir Mýrdalsjökli á óvissustigi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

Jarðskjálftahrina hófst um hádegisbilið 29. september og stendur enn yfir.  Vísindaráð Almannavarna telur líklegt að hrinan stafi af kvikuhreyfingum í Kötlu, en enn hafa engin merki um gosóróa mælst. Segir í tilkynningunni að eftirfarandi atburðarrásir séu taldar líklegastar í framhaldinu:

  1. Jarðskjálftahrinan hættir án frekari atburða.
  2. Jökulhlaup kemur fram í ám vegna minni háttar eldgoss eða tæmingar á jarðhitakötlum.
  3. Eldgos hefst í Mýrdalsjökli sem nær að brjóta sér leið í gegnum jökulinn. Afleiðingar gætu verið jökulhlaup í ám sem renna frá jöklinum ásamt öskufalli.

Að framansögðu er varað við ferðum í og við jökulár sem renna frá Mýrdalsjökli.  Sérstaklega má tiltaka Múlakvísl og Jökulsá á Sólheimasandi.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert