Karlar ánægðari með búvörusamninga en konur

Búvörusamningar undirritaðir.
Búvörusamningar undirritaðir. mbl.is/Styrmir Kári

Meirihluti landsmanna er óánægður við umdeilda búvörusamninga sem samþykktir voru á Alþingi nýverið. Sögðust 55% þeirra sem tóku afstöðu óánægðir með samningana en nær 32% segjast hvorki ánægð né óánægð og ríflega 13% segjast ánægð með þá. Þetta eru niðurstöður netkönnun sem gerð var dagana 21. - 28. september 2016 af Þjóðarpúlsi Gallup. Heildarstærð úrtaks var 1.410, þátttökuhlutfall var 59,6% en afstöðu tóku 71%.

Ef rýnt er í tölfræðina kemur í ljós að karlar eru ánægðari með samningana en konur eða 16% karla samanborið við 10% kvenna. Eldra fólk er jafnframt ánægðara en það yngra og íbúar landsbyggðarinnar ánægðari en íbúar höfuðborgarsvæðisins. 

Þá eru þeir sem lokið hafa háskólaprófi síður ánægðir með samningana en þeir sem hafa minni menntun. Loks eru þeir sem styðja ríkisstjórnina ánægðari með samningana en þeir sem styðja hana ekki. Þeir sem segjast mundu kjósa Framsóknarflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag eru hvað ánægðastir með samningana eða 58% en fæstir voru þeir ánægðir sem segjast mundu kjósa Pírata eða aðeins 2%.

Könnun Þjóðarpúls Gallup

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert