9,9 milljarðar í pottinum

EuroJackpot
EuroJackpot

Enginn var með allar aðaltölur auk beggja stjörnutalnanna réttar í EuroJackpot úrdrættinum í gær og flytjast því rúmlega 9,9 milljarðar yfir á 1. vinning í næstu viku. 

Einn var með sér 2. vinning og fær rúmar 306 milljónir í vinning, miðinn var keyptur í Þýskalandi. Átta miðaeigendur voru með 3. vinning og hljóta rúmlega 13,5 milljónir.  Af þeim voru þrír miðar keyptir í Þýskalandi og þrír í Finnlandi, einn á Ítalíu og einn í Danmörku.

Einn var með fjórar réttar tölur í Jóker og fær hann 100 þúsund í vinning, miðinn var keyptur á Lotto.is.

Alls hlutu 2172 miðaeigendur á Íslandi vinninga í þessum útdrætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert