Opið hús hjá RÚV í dag

RÚV í Reykjavík og á Akureyri stendur fyrir opnu húsi …
RÚV í Reykjavík og á Akureyri stendur fyrir opnu húsi í tilefni af 50 ára afmæli sjónvarps á Íslandi. Ljósmynd/RÚV

RÚV í Reykjavík og á Akureyri stendur fyrir opnu húsi í tilefni af 50 ára afmæli sjónvarps á Íslandi. Öllum landsmönnum er boðið í heimsókn í Útvarpshúsið, Efstaleiti 1, í dag frá klukkan 13:00 til 16:30. Starfsmenn hússins munu taka á móti fólki og leiða það um húsið til að kynna starfsemina.

Fólki gefst kostur á að skoða bæði útvarps- og sjónvarpstökuver og Gestastofu RÚV sem var opnuð við hátíðlega athöfn í gær. Öllum er boðið í kaffi og vöfflur og KrakkaRÚV, Stundin okkar, Ævar vísindamaður og fleiri stjórnvarsstjörnur skemmta afmælisgestum.

Starfsmenn RÚV á Akureyri bjóða í vöfflukaffi og kynna starfsemi sína í nýju húsnæði við Hólabraut í dag á milli 13:00 og 15:00.

Mikill afmælisbragur verður á dagskrá sjónvarps um helgina en sent verður út allan sólarhringinn, alla helgina.

Mikill afmælisbragur verður á dagskrá sjónvarps um helgina en sent …
Mikill afmælisbragur verður á dagskrá sjónvarps um helgina en sent verður út allan sólarhringinn, alla helgina. Ljósmynd/RÚV
Öllum gestum verður boðið í kaffi og vöfflur.
Öllum gestum verður boðið í kaffi og vöfflur. Ljósmynd/RÚV
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert