„Þetta var gríðarlegur hávaði“

„Það höfðu verið þrumur og eldingar þarna og ég ákvað því reyna að ná þessu á mynd,“ segir Halldór Guðmundsson sem myndaði eldingu fara í gegnum flugvél WOW air skömmu eftir flugtak í morgun. Eftir þrumur og eldingar hófst mikið haglél með gríðarstórum éljum eins og sést einnig á myndskeiði Halldórs.

Frétt mbl.is: Ótrúlegt sjónarspil

Hann náði myndunum fyrir utan fyrirtækið Allt hreint sem er staðsett við Holtsgötu í Reykjanesbæ og hann segir að sér og öðrum starfsmönnum fyrirtækisins hafi brugðið verulega við sjónarspilið. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem hann hefur upplifað þrumur og eldingar þarna.

Í myndskeiðinu sem Halldór sendi mbl.is má einnig sjá eldinguna sýnda hægt og élið sem fylgdi glæringunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert