Eldra fólkið kýs frekar

Guðni Th. Jóhannesson var settur inn í embætti forseta Íslands …
Guðni Th. Jóhannesson var settur inn í embætti forseta Íslands 1. ágúst. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Kosningaþátttakan í forsetakosningunum í sumar var minnst meðal yngstu kjósendanna mest meðal fólks á aldrinum 65-74 ára. Mun fleiri konur mættu á kjörstað en karlar. Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Við kosningarnar 25. júní voru alls 244.896 á kjörskrá eða 73,6% landsmanna. Af þeim greiddu 185.430 atkvæði eða 75,7% kjósenda. Kosningaþátttaka karla var 72,4% en þátttaka kvenna var nokkru hærri, 79,0%. Kosningaþátttakan var breytileg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjósenda. Hún var minnst hjá aldurshópnum 20–24 ára, 63,1% og 18–19 ára, 63,8%. Hæst var hlutfallið hjá 65–74 ára 87% en lækkaði síðan með aldri úr því. Hlutfall utankjörfundaratkvæða af greiddum atkvæðum var 23,1%.

Níu frambjóðendur voru í kjöri til embættis forseta Íslands, þau Andri Snær Magnason, Ástþór Magnússon, Davíð Oddsson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Halla Tómasdóttir, Hildur Þórðardóttir og Sturla Jónsson. Úrslit forsetakjörs urðu þau að Guðni Th. Jóhannesson hlaut flest atkvæði, 71.356 eða 39,1% gildra atkvæða, og var því kjörinn forseti Íslands fyrir tímabilið frá 1. ágúst 2016 til 31. júlí 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert