Víkingaskipið sökk í storminum

Víkingaskipið sökk í Reykjavíkurhöfn á sjöunda tímanum í kvöld.
Víkingaskipið sökk í Reykjavíkurhöfn á sjöunda tímanum í kvöld. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Víkingaskipið Vésteinn sem gert er út af ferðaþjónustufyrirtækinu Reykjavík Viking Adventure og sigldi í áætlunarferðir frá Reykjavíkurhöfn í sumar er sokkið í höfninni á Granda.

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst útkallsbeiðni á sjöunda tímanum í kvöld en að sögn varðstjóra gat slökkviliðið ekkert aðhafst þegar á höfnina var komið nema að tína upp lausamuni þar sem það var þá þegar sokkið. Skipið er 8 til 10 metra langt.

Frétt mbl.is: „Víkingaskip sem þolir ýmislegt“

Vefsíða víkingaskipsins Vésteins 

Sótti skjöld og sverð í sjóinn

Maður í flotgalla fór í sjóinn og tíndi upp lausamuni á borð við skjöld og sverð. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði verður ekkert aðhafst í bili enda ekki hægt að dæla upp úr skipinu í þessu veðri. Hefur slökkvilið því lokið störfum og afhent starfsmönnum hafnarinnar vettvanginn.

Skipið marrar í kafi 

Að sögn Gísla Hallsonar yfirhafnsögumanns marrar skipið í kafi og hangir í bryggjunni. Hann segir að það verði híft upp annaðhvort í kvöld eða á morgun.

„Það er kafari á leiðinni. Við ætlum að skoða þetta,“ segir Gísli og bætir við að frekar hvasst sé við höfnina en býst við að það dragi úr vindi um tíuleytið í kvöld.

Frétt mbl.is: Víkingaskipið híft upp úr höfninni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert