Nýtt skilti í Reynisfjöru

Ferðamenn virða fyrir sér nýja skiltið.
Ferðamenn virða fyrir sér nýja skiltið.

Nýtt öryggisskilti hefur verið sett upp í Reynisfjöru í dag en fyrir er skilti sem sett var upp 25. febrúar sl. Nýja skiltið er sett upp í kjölfar vinnu við áhættumat eftir að erlendur ferðamaður drukknaði í fjöruborðinu 10. febrúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá verkfræðistofunni EFLU.

Frétt mbl.is: Sex í mikilli hættu í Reynisfjöru

Frétt mbl.is: „Það varð dauðaslys“

„Áhættumatið er unnið á vegum Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og Lögreglunnar á Suðurlandi. Áhættumatið er framkvæmt af EFLU verkfræðistofu sem einnig sá um hönnun öryggisskiltisins. Uppsetning skiltanna og merkinga á staðnum er kostað af Svörtu Fjörunni, veitingastað í Reynisfjöru.

Við hönnun skiltisins var haft samband og samráð við ýmsa aðila s.s. Landsbjörgu, SafeTravel, Vegagerðina (strandverkfræðing), grafíska hönnuði og landeigendur. Skiltið er hluti af margvíslegum öryggisaðgerðum sem ráðist hefur verið í, við Reynisfjöru og miðast að því að upplýsa og auka meðvitund gesta um aðstæður og hvað ber að varast.  Með nýja skiltinu kveður við nýja hugsun í útfærslu varnaðarskilta, þar sem skýringar og myndræn framsetning eru notaðar til að fanga athygli og koma upplýsingum á framfæri. Þegar gengið er framhjá skiltinu þarf ekki nema að líta á það til að meðtaka upplýsingar um hættu, en það má einnig afla sér frekari upplýsinga ef stoppað er við skiltið og það skoðað gaumgæfilega.

Hönnun skiltanna í Reynisfjöru og áhættumatið getur nýst við samræmingu bæði varðandi öryggismál á ferðamannastöðum og hættuskilta kringum landið,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert