Umhverfismat vegna Bakka í fullu gildi

Landsnet segir Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála staðfesta að umhverfismat vegna …
Landsnet segir Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála staðfesta að umhverfismat vegna háspennulínu frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé í fullu gildi.

Landsnet segir úrskurð Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála staðfesta að umhverfismat vegna háspennulínu frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé í fullu gildi og því sé ekki þörf á nýju umhverfismati. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Landsnet sendi frá sér eftir að hafa kynnt sér ástæður sem gefnar eru fyrir því að framkvæmdaleyfi Skútustaðahrepps vegna Kröflulínu 4 var fellt úr gildi.

Þar segir að ekki sé fallist á kæru Landverndar í úrskurðinum um að mat á umhverfisáhrifum 220 kV háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé úrelt eða forsendur fyrir því brostnar.  Heldur hafi einungis verið fundnir annmarkar á afgreiðslu og útgáfu Skútustaðahrepps á framkvæmdaleyfi til Landsnets.

„Ljóst er að úrskurðurinn staðfestir að umhverfismat vegna háspennulínu frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé í fullu gildi og því er ekki þörf á nýju umhverfismati.  Þá staðfestir úrskurðanefndin að öll skilyrði fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi voru fyrir hendi,“ segir í fréttatilkynningunni.

Nefndin staðfesti þá að matið hafi verið ítarlegt og að kostir um mismunandi leiðaval hafi verið metnir með fullnægjandi hætti. „Nefndin kemst því að þeirri niðurstöðu að matið sé í fullu gildi og ekki þörf á nýju mati á umhverfisáhrifum auk þess sem framkvæmdirnar séu í samræmi við umhverfismat og skipulag.

Úrskurðarnefndin staðfestir jafnframt að framkvæmdaleyfisumsókn Landsnets og fylgigögn hafi fullnægt ákvæðum skipulagslaga. Úrskurðarnefndin staðfestir einnig að framkvæmdir Landsnets séu í samræmi við skipulagsáætlanir og að lögbundinna umsagna hafi verið leitað.“

Mikilvægt að eyða óvissu

Þá segir í tilkynningunni að framkvæmdir Landnets hafi legið niðri síðan að þær voru stöðvaðar að kröfu Landverndar 21. ágúst. Þær tafir sem orðið hafa vegna stöðvunarinnar séu þegar orðnar mjög kostnaðarsamar auk þess sem óvissa ríkir um framhald verkefnisins. „Landsnet leggur áherslu á að allri óvissu verði eytt sem fyrst enda eru þær línulagnir sem um ræðir lokaskref framkvæmdar sem hefur verið mörg ár í undirbúningi.“

Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingfulltrúi Landsnets, segir tafirnar við lagningu línunnar hafa falið í sér töluverðan kostnað og enn sé verið að metar heildarumfang hans.

Stöðvunin að stórum hlut innan iðnaðarsvæðis Þeistareykjavirkjunar

Eftir að úrskurðurinn féll í gær stöðvaði fyrirtækið allar framkvæmdir á svæðinu, en áður höfðu framkvæmdir við Kröflulínu verið stöðvaðar vegna kæru Landverndar.

„Landvernd kærði þann 12. júlí þá ákvörðun Þingeyjarsveitar að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir Kröflulínu 4 og Þeistareykjalínu 1 og var þess jafnframt krafist að framkvæmdir verði stöðvaðar á meðan málið væri til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni. Úrskurðarnefndin úrskurðaði til bráðabirgða þann 19. ágúst 2016 að stöðva framkvæmdir við Kröflulínu 4 innan deiliskipulagssvæðis Þeistareykjavirkjunar og framkvæmdir við Þeistareykjalínu 1 innan Þingeyjarsveitar. Framkvæmdir við Þeistareykjalínu voru ekki hafnar innan Þingeyjarsveitar en við Kröflulínu 4 voru þær langt komnar. Landsnet stöðvaði þegar framkvæmdir á þessum svæðum,“ segir Steinunn og kveður svæðið sem stöðvunin nær til vera að stórum hluta innan iðnaðarsvæðis Þeistareykjavirkjunar. 

Spurð hvort Landsnet geti flutt raforku til iðnaðarsvæðisins að Bakka án Þeistareykjarrlínu segir hún svo ekki vera.  „Við verðum að hafa Þeistarreykjalínu."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert