Úrskurður nefndarinnar fordæmisgefandi

Þeistareykjavirkjun. Landvernd segir úrskurð nefndarinnar fela í sér gagnrýni á …
Þeistareykjavirkjun. Landvernd segir úrskurð nefndarinnar fela í sér gagnrýni á vinnubrögð Landsnets og Skipulagsstofnunar við framfylgd markmiða umhverfismatslöggjafar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Landvernd telur úrskurð  úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála  um að ógilda framkvæmdaleyfi Skútustaðahrepps fyrir Kröflulínu 4 vera fordæmisgefandi. Niðurstaðan feli jafnframt í sér viðurkenningu á gildi náttúruverndarsjónarmiða við ákvarðanir stjórnvalda að því er segir í fréttatilkynningu frá samtökunum. 

„Í ákvörðun sinni í gær setti úrskurðarnefndin fram mikilvægar stefnumarkandi efnisniðurstöður og leiðbeiningar um markmið umhverfismats, vinnubrögð framkvæmdaaðila, hlutverk Skipulagsstofnunar og ekki síst skyldur sveitarfélaga. Úrskurðurinn felur í sér gagnrýni á vinnubrögð Landsnets og Skipulagsstofnunar við framfylgd markmiða umhverfismatslöggjafar og áfellisdóm yfir framfylgd skipulagslaga og náttúruverndarlaga í meðförum sveitarfélagsins á leyfisumsókn Landsnets,“ segir í tilkynningunni. 

Í úrskurðinum sé tekið undir þau sjónarmið Landverndar og Fjöreggs í Mývatnssveit að umhverfismati framkvæmdarinnar og ákvarðanatöku sveitarfélagsins í tengslum við það hafi verið ábótavant. „Tilgangur með umhverfismati er að draga úr umhverfisáhrifum framkvæmda. Það verður aðeins gert með vönduðum rannsóknum og samanburði framkvæmdakosta.“

Sinnti lagaskyldu aðeins að nafninu til

Úrskurðurinn sýni að Landnet hafi aðeins sinnt að nafninu til þeirri lagaskyldu sinni að bera saman jarðstrengi og línuleiðir sem mismunandi valkostum fyrir lagningu raflínanna. Þá hafi Skipulagsstofnun brugðist eftirlitshlutverki sínu vegna þessa og loks hafi ákvörðun sveitarstjórnar ekki byggt á viðeigandi rökstuðningi, né heldur hafi hún sinnti þeirri skyldu sinni að rannsaka málið. 

„Úrskurðurinn fjallar því fyrst og fremst um efnisleg mistök þessara aðila, ekki formgalla eins og skilja mátti af orðum umhverfisráðherra og oddvita Skútustaðahrepps í hádegisfréttum RÚV í dag.“  

Segja samtökin mikilvægt að framkvæmdaraðilar, Skipulagsstofnun og sveitarfélög í landinu líti í eigin barm og læri af þeim mistökum sem hér hafi verið gerð. „Á þetta ekki síst við um undirbúning og framkvæmd umhverfismats, eftirlit með því og þá ábyrgð sem fylgir ákvarðanatöku um framkvæmdir sem hafa verulega áhrif á umhverfið.“

Hollara væri að viðhafa vandaðri vinnubrögð í samræmi við lög í landinu og sýna í verki virðingu gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum og ekki síst starfi umhverfisverndarsamtaka að bættu umhverfi og mannlíf. „Sú fádæma aðför að málsmeðferðarréttindum umhverfisverndarsamtaka, stjórnarskrá og alþjóðasáttmálum sem stjórnvöld áætluðu með setningu löggjafar um framkvæmdaleyfin er nú fallin um sjálfa sig. Stjórnvöldum er ekki lengur stætt á að halda lagasetningu um Bakkalínur til streitu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert