Aukin fjárfesting í útlöndum

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði áherslu á mikilvægi þess að lífeyrissjóðir fjárfesti meira í útlöndum í ræðu sinni á Alþingi.

„Það er einföld áhættudreifing. Síðan er augljós hætta á samþjöppun á innlendum markaði þegar þessi stóru fjárfestar eru jafnstórir og raun ber vitni,“ sagði Guðlaugur Þór.

„Ég vek athygli á því að norski olíusjóðurinn fjárfestir eingöngu fyrir utan Noreg, meðal annars af þessum ástæðum sem ég nefndi hér. Við verðum að líta á þessa hluti til lengri tíma.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert