Frumvarp um raflínur lagt til hliðar

Framkvæmdir við verksmiðju PCC á Bakka eru hafnar.
Framkvæmdir við verksmiðju PCC á Bakka eru hafnar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun „að leggja til hliðar“ frumvarp um raflínur að Bakka. Þetta er gert að höfðu samráði við sveitarfélögin sem hlut eiga að máli.

Í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu kemur fram að í tengslum við uppbyggingu iðnaðarsvæðis að Bakka hafi þrjú sveitarfélög á svæðinu gefið út fjögur framkvæmdaleyfi vegna lagningar raflína frá Kröfluvirkjun að Bakka (Þeistareykjalína 1 og Kröflulína 4). Fyrr á árinu voru þau framkvæmdaleyfi kærð til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála og í júní og ágúst kvað úrskurðanefndin upp úrskurði til bráðabirgða þar sem stöðvaðar voru framkvæmdir á hluta leiðarinnar í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit. „Úrskurðir þessir settu framgang verkefnisins í uppnám og í ljósi þeirra ríku samfélagslegu og efnahagslegu hagsmuna sem í húfi eru var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp sem heimilaði lagningu viðkomandi raflína með það að markmiði að eyða þeirri óvissu sem upp var komin,“ segir í tilkynningunni.

Þann 10. október 2016 féll efnisúrskurður hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem framkvæmdaleyfi Skútustaðahrepps vegna Kröflulínu 4 er fellt úr gildi á grundvelli ákveðinna formgalla við útgáfu leyfisins. Með úrskurðinum var jafnframt staðfest að umhverfismat vegna háspennulínu frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé í gildi og því sé ekki þörf á nýju umhverfismati. Því hefur verið eytt veigamikilli óvissu varðandi umræddar framkvæmdir, sem var ein meginástæða fyrir framlagningu áðurnefnds stjórnarfrumvarps.

„Að höfðu samráði við sveitarfélögin sem hlut eiga að máli var á fundi ríkisstjórnar í morgun ákveðið að falla frá framangreindu stjórnarfrumvarpi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. „Í framhaldi af því munu viðkomandi sveitarfélög, á grundvelli þeirra sjónarmiða sem fram koma í úrskurðinum frá 10. október 2016, fara yfir þau framkvæmdaleyfi sem gefin hafa verið út vegna framkvæmdarinnar og meta hvort tilefni sé til frekari viðbragða með það að markmiði að eyða enn frekar óvissu um framgang framkvæmdarinnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert