Vilja ræða „græna trefilinn“

Loftmynd af Móskarðshnjúkum og Esjunni.
Loftmynd af Móskarðshnjúkum og Esjunni. Sigurður Bogi Sævarsson

Íbúasamtök Kjalarness hafa boðað til opins fundar með borgarfulltrúum fimmtudaginn 10. nóvember til að ræða framtíðarsýn Reykjavíkurborgar á „græna treflinum“.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá íbúasamtökunum, en trefillinn mun vera samheiti yfir skógræktar- og útivistarsvæði á útmörk sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu og svæðinu við og í næsta nágrenni við Esjuna.

„Kjarni máls­ins er að borg­ar­stjór­inn lýsti því yfir fyr­ir um sex eða sjö vik­um síðan að hald­inn yrði fund­ur eft­ir sex vik­ur.

Við frétt­um af því að sá fund­ur yrði aðeins til kynn­ing­ar á verk­efn­inu en við vilj­um fyrst og fremst ræða framtíða græna tref­ils­ins, sú umræða þarf að fara fram fyrst,“ segir Sigþór Magnús­son, formaður Íbúa­sam­taka Kjal­ar­ness, í sam­tali við mbl.is.

Í ágústmánuði lögðust Íbúasamtök Kjalarness alfarið gegn því að Reykja­vík­ur­borg und­ir­riti samn­ing um leigu á lóðum í hlíðum Esju í tengsl­um við áætlan­ir fyr­ir­tæk­is­ins Esju­ferju ehf. um svif­braut á Esju.

Frétt mbl.is: Afþakka svifbraut á Esju

Í tilkynningunni kemur fram að íbúar á Kjalarnesi hafi ítrekað beðið um fund hjá Reykjavíkurborg varðandi hugmyndir um framkvæmdir í Esjuhlíðum sem rími ekki við núgildandi skilgreiningu á græna treflinum.

Ekkert hafi orðið af því og þess vegna sé boðað til fundarins.

Íbúar hrifnir af uppgræðslunni

„Þetta er gífurlega mikið rask sem þeir voru að skipuleggja án þess að hafa ákveðið framtíð græna trefilsins. Samkvæmt honum eiga að vera litlar byggingar, ef einhverjar, til að þjóna ferðamönnum en í þessu tilviki erum við að tala um fleiri hundruð fermetra,“ segir Sigþór.

Ræða þurfi heildarmyndina um skipulag uppbyggingar á Esjusvæðinu því íbúar séu almennt hrifnir af uppgræðslu síðustu ára. 

„Íbúar eru almennt hrifnir af því að vera með uppgræðslu í fjallinu og við finnum fyrir því að sú gróðursetning sem hefur farið fram undanfarin ár hefur skapað heilmikið skjól fyrir íbúa og vegfarendur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert