Ætla áfram með matareitrunarmálið

Sigurbjörg Dís og Jón Haukur á brúðkaupsdaginn.
Sigurbjörg Dís og Jón Haukur á brúðkaupsdaginn. Ljósmynd/Sigurbjörg Dís

„Við höfum beðið eftir þessum gögnum til að halda áfram með málið. Ég vil fá endurgreiðslu. Ég er ekki tilbúin að greiða fyrir það sem ég fékk ekki,“ segir Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir. Í brúðkaupi hennar í Sand­gerði í sumar fengu tug­ir matareit­un.

Mat­ur, sem bor­inn var fram ­í veislunni, var lagaður á veit­inga­húsi í Reykja­vík og flutt­ur á staðinn í hita­köss­um með ófull­nægj­andi hætti að mati Heil­brigðis­eft­ir­lits Reykja­vík­ur. Þetta kem­ur fram í nýj­asta tölu­blaði Far­sóttar­frétta embætt­is landlæknis.  

Frétt mbl.is: Lambakjötið mengað af eiturefnum.

Málið er komið inn á borð Neytendastofu, að sögn Sigurbjargar. Auk fyrrgreindrar skýrslu segir hún að skýrslur frá Matvælastofnun, Heilbrigðiseftirlitinu og greinargerð frá þjónum verða lagðar fram í málinu. Sigurbjörg tekur fram að hjónin ætli ekki að fara fram á skaðabætur heldur vilja þau fá endurgreiddan kostnað við veitingarnar í veislunni. 

„Ég vil líka fá afsökunarbeiðni,“ segir Sigurbjörg. Hún segir samskiptin ekki hafa verið góð við eig­anda veitingaþjónustunnar, Magnús Inga Magnús­son sem flestir kannast við sem eiganda Texasborgara, eftir að í ljós kom hvernig málum var háttað.     

Eiturefni í lambakjötinu byggt á líkum

Í Farsóttarfréttum landlæknisembættisins kemur fram að sýkingin sé líklega rakin til lambakjötsins. Ekki hafi verið hægt að greina sýni úr lambakjötinu þar sem búið hafði verið að farga kjötinu. „Ljóst var af ein­kenn­um þeirra brúðkaups­gesta sem veikt­ust og tíma­setn­ingu ein­kenna eft­ir neyslu mat­væl­anna að hér var lík­leg­ast um að ræða matareitrun frem­ur en mat­ar­sýk­ingu. Lík­leg­ir or­saka­vald­ar slíkra matareitr­ana eru Stapylococcus aur­eus, Bacillus cer­eus og/​eða Clostridi­um perfr­ingens,“ seg­ir enn­ frem­ur í Far­sóttar­frétt­um.

Líklegast urðu brúðkaupsgestir veikir vegna lambakjötsins sem borið var á …
Líklegast urðu brúðkaupsgestir veikir vegna lambakjötsins sem borið var á borð. mbl.is/Árni Sæberg

Magnús Ingi Magnús­son, eigandi veitingaþjónustunnar, segir að niðurstaðan byggi á líkindum. Hann vill ekki kannast við að kjötinu hafi verið fargað heldur hafi það hreinlega klárast í veislunni. „Það er ekki staðfest að sýkingin hafi verið í lambakjötinu heldur er þetta byggt á líkindum og sett svona fram. Ég skil ekki hvaðan þessi eiturefni í lambakjötinu ættu að hafa komið. Mér finnst þetta furðulegt en maður deilir ekki við dómarann,“ segir Magnús Ingi.

Hann tekur fram að honum þyki leiðinlegt að svona hafi farið. „Ég er ekki að draga í efa að eitthvað hafi komið fyrir,“ segir hann. 

Frétt mbl.is: Nær allir brúðkaupsgestir fengu matareitrun 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert