Hafnar ásökunum á hendur sér

Alda Hrönn Jóhannsdóttir.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún vísar alfarið á bug ásökunum á hendur sér sem nú eru til rannsóknar hjá settum héraðssaksóknara.

Frétt mbl.is: Rannsakar misbeitingu lögregluvalds

Ásakanirnar varða svokallað LÖKE-mál.

Yfirlýsing Öldu í heild:

„Í ljósi þess að settur héraðssaksóknari hefur ákveðið að hefja rannsókn á aðkomu minni að máli lögreglumanns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og tveggja annarra aðila á meðan ég gegndi stöðu yfirlögfræðings hjá lögreglunni á Suðurnesjum, vil ég taka eftirfarandi fram:

Ég vísa alfarið á bug þeim ásökunum sem eru tilefni rannsóknarinnar. Sú aðkoma sem ég hafði að umræddu máli féll undir starfsskyldur mínar í mínu fyrra starfi. Rannsóknir á ætluðum brotum lögreglumanna í starfi voru á þessum tíma, lögum samkvæmt, á forræði ríkissaksóknara og það var einnig í þessu máli. Embætti ríkissaksóknara óskaði eftir aðstoð embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum við meðferð málsins og það voru lögreglumenn þess embættis sem önnuðust rannsóknina. Ég kom eingöngu að umræddu máli sem löglærður fulltrúi. Rannsókn málsins leiddi til þess að embætti ríkissaksóknara höfðaði sakamál á hendur lögreglumanninum sem lauk með því að Hæstiréttur Íslands sakfelldi hann fyrir brot í starfi.

Lögbundin þagnarskylda kemur í veg fyrir að ég geti tjáð mig frekar um efnisatriði málsins. Ég get hins vegar upplýst að ég rækti starfsskyldur mínar af fyllstu fagmennsku og í samræmi við meðferð slíkra mála.

Ég hef skilning á að fólk leiti réttar síns finnist því á sér brotið. Á hinn bóginn þykir mér hart að sæta rannsókn fyrir það eitt að sinna starfi mínu í samræmi við starfsskyldur mínar.

Ég vona að rannsókn þessari ljúki hið fyrsta og trúi staðfastlega að hún muni leiða hið sanna í ljós og hreinsa mig af öllum ásökunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert